SÖNGUR 99
Milljónir bræðra
-
1. Þúsundir þúsunda bræðra,
þeir eru milljónir.
Saman sem sannir vottar,
sýna trú ráðvandir.
Ótalmörg núna erum,
ört myndum mikinn múg.
Af hverri þjóð, tungu, ætt og lýð
öll lofum við Guð nú.
-
2. Þúsundir þúsunda bræðra
þjóna nú nær og fjær.
Miðlum við merkum fréttum,
milljónir gleðja þær.
Þegar svo störfum þolgóð
þrátt fyrir álagið
Jesús mun hressa og hughreysta,
hvíld veitir hann og frið.
-
3. Þúsundir þúsunda bræðra,
þeim hjálpar Drottinn fljótt.
Forgörðum í þeir fagna
föðurnum dag og nótt.
Þúsunda þúsund erum,
þjónum Guðsríki hér.
Samverkamenn Guðs við erum öll,
einhuga þjóð Guðs er.
(Sjá einnig Jes. 52:7; Matt. 11:29; Opinb. 7:15.)