SÖNGUR 81
Líf brautryðjandans
-
1. Þegar nýr dagur rís hefst það starf sem ég kýs.
Meðal fólksins ég fer
þó að syfjaður sé og ég bið.
Brosi til þeirra sem leggja leið sína hjá.
Sumir víkja sér frá,
aðrir stoppa um stund, doka við.
(VIÐLAG)
Þetta líf veljum við,
þjónum Jehóva glöð.
Allt sem hann biður um gerum við.
Úthald sýnum í raun
gegnum skúrir og skin.
Þannig segjum við Jehóva: „Ég elska þig.“
-
2. Þegar dagsbirtan dvín og er tunglsljósið skín
erum þreytt en samt glöð
og af þakklæti förum með bæn.
Þetta líf elskum við, gefum af okkur fús.
Þökkum Jehóva því
blessun hans höfum við sem er væn.
(VIÐLAG)
Þetta líf veljum við,
þjónum Jehóva glöð.
Allt sem hann biður um gerum við.
Úthald sýnum í raun
gegnum skúrir og skin.
Þannig segjum við Jehóva: „Ég elska þig.“
(Sjá einnig Jós. 24:15; Sálm 92:3; Rómv. 14:8.)