SÖNGUR 62
Nýi söngurinn
-
1. Söng við syngjum hátt, af krafti syngjum þakkarbrag.
Söng um dáðir Drottins, hans dásemdir hvern dag.
Syngdu’ um hægri hönd sem veitir honum sigur létt.
Málstað Drottins dáum,
hann dæmir ávallt rétt.
(VIÐLAG)
Syngjum söng
með þýðum þakkaróm.
Syngjum söng
því Guð á konungdóm.
-
2. Gjalli gleðióp og lögin glaðleg dægrin löng.
Lífsins föður lofum, með lofgjörð flytjum söng.
Komdu’ í þennan kór og syngdu’ af krafti þetta lag.
Lúður, horn og harpa
samhljóma sérhvern dag.
(VIÐLAG)
Syngjum söng
með þýðum þakkaróm.
Syngjum söng
því Guð á konungdóm.
-
3. Höfin heiðri Guð og skepnur hafsins endalaust.
Ásamt allri sköpun öll hefjum við upp raust.
Fagni líka lönd og sérhver lækur klappi dátt.
Fjöllin ávallt fagni,
þau frægi Drottins mátt.
(VIÐLAG)
Syngjum söng
með þýðum þakkaróm.
Syngjum söng
því Guð á konungdóm.
(Sjá einnig Sálm 96:1; 149:1; Jes. 42:10.)