SÖNGUR 149
Sigursöngur
-
1. Sigursöng syngjum því nafn Guðs það hátt er upp hafið.
Hann hreyknum Egyptum steypti djúpt í Rauðahaf.
Bjargvættinn lofum
því hver líkist honum að mætti?
Hann heitir Jehóva,
sigri hrósar hann sér af.
(VIÐLAG)
Þú, Jehóva, sem valdið átt æðst,
um alla eilífð breytist ekki neitt.
Brátt heilagt nafn þitt helgar þú svo glæst
er heimsins drottnum verður eytt.
-
2. Safnast hér þjóðir nú gegn sjálfum Jehóva Guði.
Líkt grimmum faraó
þurfa þær að þola háð.
Í Harmagedón þær hljóta
sín málagjöld makleg.
Brátt nafnið Jehóva
vörum allra verður á.
(VIÐLAG)
Þú, Jehóva, sem valdið átt æðst,
um alla eilífð breytist ekki neitt.
Brátt heilagt nafn þitt helgar þú svo glæst
er heimsins drottnum verður eytt.
(Sjá einnig Sálm 2:2, 9; 92:9; Mal. 3:6; Opinb. 16:16.)