SÖNGUR 147
Loforð um eilíft líf
-
1. Eilífu lífi Guð lofar,
ljóst er að jörðin ei ferst.
Umbun, sem öllu er ofar,
aldrei auðmjúkum bregst.
(VIÐLAG)
Við eilíft líf hljótum
ef náðar Guðs njótum.
Orð Guðs trúföst eru,
uppfyllingu fá.
-
2. Paradís fullkomnun færir,
frelsinu loks kynnumst við.
Undir Guðs leiðsögn fólk lærir,
lifir við sannan frið.
(VIÐLAG)
Við eilíft líf hljótum
ef náðar Guðs njótum.
Orð Guðs trúföst eru,
uppfyllingu fá.
-
3. Innan skamms upprisan þráða
afmáir sorg, læknar sár.
Alltaf mun elska Guðs ráða,
öll hann þerra mun tár.
(VIÐLAG)
Við eilíft líf hljótum
ef náðar Guðs njótum.
Orð Guðs trúföst eru,
uppfyllingu fá.
(Sjá einnig Jes. 25:8; Lúk. 23:43; Jóh. 11:25; Opinb. 21:4.)