Söngur 48
Göngum hönd í hönd með Guði
(Míka 6:8)
1. Göngum hönd í hönd með Guði
hógvær lútum honum sérhvern dag.
Drottins ást fá óverðskuldað
allir þeir sem hyggja að hans hag.
Vegna lausnargjaldsins getum
gengið ótrauð við hans hlið.
Honum skulum við því vígjast,
veitum Jehóva okkar lið.
2. Nú er dagur dóms á jörðu,
dragast heimsins endalok því nær.
Þegar við því erum ofsótt
óttafull við gætum hörfað fjær.
Þar sem okkur vernd Guð veitir
viljum við hann nálgast þá.
Ef við hann af hjarta elskum
honum villumst við aldrei frá.
3. Stuðning okkur Guð sinn gefur
gegnum andann, einnig orðin skráð.
Notar söfnuð sinn til hjálpar,
svarar bænum sem við höfum tjáð.
Þegar við með Guði göngum
glæðist fagur vilji manns.
Líkjum eftir góðum Guði,
göngum hógvær í augsýn hans.
(Sjá einnig 1. Mós. 5:24; 6:9; 1. Kon. 2:3, 4.)