Biblíuspurningar og svör
Er hægt að vita sannleikann um Guð?
Guð hefur gefið mönnunum upplýsingar um sig. Hann notaði heilagan anda sinn, eða starfskraft, til að innblása biblíuriturunum hugsanir sínar. (2. Pétursbréf 1:20, 21) Við getum kynnst sannleikanum um Guð með því að lesa Biblíuna. – Lestu Jóhannes 17:17; 2. Tímóteusarbréf 3:16.
Í Biblíunni opinberar Guð okkur margt um sjálfan sig. Hann segir okkur hvers vegna hann skapaði okkur mennina, hvað hann á eftir að gera fyrir mannkynið og hvernig hann vill að við notum líf okkar. (Postulasagan 17:24-27) Jehóva Guð vill að við þekkjum sannleikann um sig. – Lestu 1. Tímóteusarbréf 2:3, 4.
Hvers vegna býður Guð sannleiksleitandi fólki að kynnast sér?
Jehóva er Guð sannleikans. Hann sendi son sinn, Jesú, til að kenna mönnum sannleikann. Þess vegna laðast sannleiksleitandi fólk að Jesú. (Jóhannes 18:37) Guð leitar slíkra tilbiðjenda. – Lestu Jóhannes 4:23, 24.
Satan djöfullinn hefur hindrað marga í að kynnast Guði með því að breiða út lygar um hann. (2. Korintubréf 4:3, 4) Þeir sem elska ekki hið góða laðast að slíkum falskenningum. (Rómverjabréfið 1:25) En milljónir einlægra manna finna sannleikann um Guð með því að kynna sér Biblíuna. – Lestu Postulasöguna 17:11.