Persónuverndarstillingar

Við notum vefkökur og álíka tækni til að upplifun þín verði sem best. Sumar vefkökur eru nauðsynlegar og þeim er ekki hægt að hafna. Aðrar vefkökur geturðu valið að samþykkja eða hafna en þær notum við aðeins til að auka notagildi síðunnar. Gögnin verða aldrei seld eða notuð í markaðsskyni. Nánari upplýsingar er að finna á síðunni Notkun vefkakna og tengdrar tækni í söfnuði Votta Jehóva um allan heim. Þú getur breytt stillingunum hvenær sem er í persónuverndarstillingunum.

Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Maður dáist að fallegu landslagi.

Hver er Guð?

Hver er Guð?

Margir segjast trúa á Guð en ef þú spyrðir þá hver hann sé fengirðu ólík svör. Sumir segja Guð vera harðan dómara sem leitast við að refsa fólki fyrir syndir þeirra. Aðrir segja að hann sé alltaf ástríkur og fús til að fyrirgefa hvað sem er. Og enn aðrir trúa að Guð sé fjarlægur og hafi engan áhuga á okkur. Margir halda að það sé ekki hægt að komast að því hver Guð sé þar sem skoðanir eru svo ólíkar.

Skiptir það máli? Já, það gerir það. Að kynnast Guði náið getur gefið þér aukinn tilgang í lífinu. (Postulasagan 17:26-28) Eftir því sem þú kynnist Guði nánar elskar hann þig meira og hjálpar þér. (Jakobsbréfið 4:8) Síðast en ekki síst getur það leitt til eilífs lífs að kynnast Guði náið. – Jóhannes 17:3.

Hvernig geturðu kynnst Guði? Hugsaðu um náinn vin sem þú þekkir vel. Hvernig urðuð þið góðir vinir? Þú fékkst eflaust að vita hvað hann heitir, kynntist persónuleika hans, hvað honum líkar og hvað ekki, auk þess hvað hann hefur gert og hvað hann ætlar sér í framtíðinni og fleira. Þetta gerði ykkur að nánum vinum – þú kynntist honum vel.

Á sama hátt getum við kynnst Guði með því að leita svara við eftirfarandi spurningum:

Í þessu blaði er bent á svör Biblíunnar við þessum spurningum. Þú færð að vita hver Guð er en einnig hvaða gagn þú hefur af því að eignast persónulegt samband við hann.