8.-14. maí
JEREMÍA 35-38
Söngur 33 og bæn
Inngangsorð (3 mín. eða skemur)
FJÁRSJÓÐIR Í ORÐI GUÐS
„Ebed Melek – Líkjum eftir hugrekki hans og góðvild“: (10 mín.)
Jer 38:4-6 – Sedekía lét ótta við menn ná tökum á sér og leyfði andstæðingum að kasta Jeremía í gryfju til þess eins að deyja. (it-2-E 1228 gr. 3)
Jer 38:7-10 – Ebed Melek var hugrakkur og fastákveðinn í að hjálpa Jeremía. (w12-E 1.5. 31 gr. 2-3)
Jer 38:11-13 – Ebed Melek sýndi gæsku. (w12-E 1.5. 31 gr. 4)
Gröfum eftir andlegum gimsteinum: (8 mín.)
Jer 35:19 – Hvers vegna hlutu Rekabítarnir blessun? (it-2-E 759)
Jer 37:21 – Hvernig sá Jehóva fyrir þörfum Jeremía og hvernig getur það verið okkur hvatning þegar við verðum fyrir mótlæti? (w98 1.3. 26 gr. 16-17; w95 1.11. 5 gr. 6-7)
Hvað hefurðu lært um Jehóva af biblíulestri vikunnar?
Nefndu aðra andlega gimsteina sem þú hefur fundið við biblíulestur vikunnar.
Biblíulestur: (4 mín. eða skemur) Jer 36:27–37:2
LEGGÐU ÞIG FRAM VIÐ AÐ BOÐA TRÚNA
Fyrsta heimsókn: (2 mín. eða skemur) wp17.3 forsíða – Leggðu grunn að endurheimsókn.
Endurheimsókn: (4 mín. eða skemur) wp17.3 forsíða – Leggðu grunn að næstu heimsókn.
Biblíunámskeið: (6 mín. eða skemur) jl 26. kafli
LÍF OKKAR Í KRISTINNI ÞJÓNUSTU
„Höldum tilbeiðsluhúsum okkar við“: (15 mín.) Spurningar og svör í umsjón öldungs. Þegar búið er að spila myndskeiðið Höldum tilbeiðsluhúsum okkar við og fara yfir spurningarnar skaltu hafa stutt viðtal við fulltrúa rekstrarnefndarinnar. (Ef söfnuðurinn þinn á ekki fulltrúa í nefndinni skaltu hafa viðtal við umsjónarmann öldungaráðsins. Ef söfnuðurinn er einn um að nota ríkissalinn skaltu hafa viðtal við umsjónarmann viðhalds.) Hvaða viðhaldsverkefni í ríkissalnum hefur nýlega verið lokið við og hvaða verkefni er næst á dagskrá? Hvert ættu þeir sem búa yfir fagkunnáttu að snúa sér, og aðrir sem eru tilbúnir að aðstoða og læra? Hvernig getum við öll, óháð aðstæðum okkar, tekið þátt í viðhaldi ríkissalarins?
Safnaðarbiblíunám: (30 mín.) kr kafli 12 gr. 9-15, rammagreinarnar „Hvernig umsjónin breyttist til batnaðar“ og „Hvernig gætir hið stjórnandi ráð hagsmuna guðsríkis á jörð?“
Upprifjun og síðan kynning á efni næstu viku (3 mín.)
Söngur 125 og bæn