LÍF OKKAR Í KRISTINNI ÞJÓNUSTU
Að nota tillögurnar að umræðum
Mikil vinna hefur verið lögð í að úthugsa tillögurnar að umræðum og margir boðberar segja að þær beri góðan árangur á starfssvæðinu. En aðstæður eru ekki alls staðar eins. Þess vegna er boðberum frjálst að nota öðruvísi aðferð og annað umræðuefni í boðuninni sem höfðar til fólks á þeirra starfssvæði. Að sjálfsögðu ættu allir að fylgja leiðbeiningunum þegar sérstakt átak er gert. Markmið okkar er að framfylgja fyrirmælum Jesú um að boða fagnaðarboðskapinn um ríkið. – Mt 24:14.
Þegar boðberar hafa nemendaverkefni eiga þeir að taka fyrir umræðuefnið sem er í tillögunum að umræðum í Líf okkar og boðun vinnubók fyrir samkomur. En ef ekkert annað er tekið fram er þeim samt frjálst að velja öðruvísi spurningu, biblíuvers, spurningu fyrir næstu heimsókn eða sviðsetningu sem líklegt er að skili árangri í byggðarlaginu. Þetta er breyting á leiðbeiningunum á bls. 8 í vinnubókinni fyrir samkomur í júní 2020.