Opinberun Jóhannesar 7:1–17

  • Fjórir englar halda aftur af eyðingarvindum (1–3)

  • Hinar 144.000 innsiglaðar (4–8)

  • Mikill múgur í hvítum skikkjum (9–17)

7  Eftir þetta sá ég fjóra engla sem stóðu við fjögur horn jarðar. Þeir héldu aftur af fjórum vindum jarðar svo að enginn vindur gæti blásið á jörðina, hafið né nokkurt tré.  Og ég sá annan engil stíga upp þar sem sólin rís.* Hann hélt á innsigli hins lifandi Guðs og hrópaði hárri röddu til englanna fjögurra sem var gefið vald til að vinna tjón á jörðinni og hafinu:  „Valdið ekki tjóni á jörðinni, hafinu né trjánum fyrr en við höfum sett innsigli+ á enni þjóna Guðs okkar.“+  Ég heyrði hversu margir höfðu fengið innsigli, 144.000+ af öllum ættkvíslum Ísraelsmanna:+  Af ættkvísl Júda höfðu 12.000 fengið innsigli,af ættkvísl Rúbens 12.000,af ættkvísl Gaðs 12.000,  af ættkvísl Assers 12.000,af ættkvísl Naftalí 12.000,af ættkvísl Manasse+ 12.000,  af ættkvísl Símeons 12.000,af ættkvísl Leví 12.000,af ættkvísl Íssakars 12.000,  af ættkvísl Sebúlons 12.000,af ættkvísl Jósefs 12.000 ogaf ættkvísl Benjamíns höfðu 12.000 fengið innsigli.  Eftir þetta sá ég mikinn múg, sem enginn maður gat talið, af öllum þjóðum, ættflokkum, kynþáttum og tungum*+ standa frammi fyrir hásætinu og lambinu. Fólkið var klætt hvítum skikkjum+ og var með pálmagreinar í höndunum.+ 10  Það hrópaði stöðugt hárri röddu: „Frelsunin kemur frá Guði okkar, sem situr í hásætinu,+ og lambinu.“+ 11  Allir englarnir stóðu kringum hásætið og öldungana+ og lifandi verurnar fjórar. Þeir féllu á grúfu frammi fyrir hásætinu, tilbáðu Guð 12  og sögðu: „Amen! Lofgjörðin, dýrðin og viskan, þakkargjörðin, heiðurinn, mátturinn og krafturinn sé Guði okkar um alla eilífð.+ Amen.“ 13  Einn af öldungunum spurði mig þá: „Hverjir eru þetta sem eru í hvítu skikkjunum+ og hvaðan koma þeir?“ 14  Ég svaraði um leið: „Herra minn, þú veist það.“ Hann sagði þá við mig: „Þetta eru þeir sem koma úr þrengingunni miklu+ og þeir hafa þvegið skikkjur sínar skjannahvítar í blóði lambsins.+ 15  Þess vegna eru þeir frammi fyrir hásæti Guðs og veita honum heilaga þjónustu dag og nótt í musteri hans, og sá sem situr í hásætinu+ mun tjalda yfir þá.+ 16  Þá mun hvorki hungra né þyrsta framar og hvorki sólin né nokkur steikjandi hiti brenna þá+ 17  því að lambið,+ sem er fyrir miðju hásætinu, mun gæta þeirra+ og leiða að uppsprettum* lífsvatnsins.+ Og Guð þerrar hvert tár af augum þeirra.“+

Neðanmáls

Eða „í austri“.
Eða „tungumálum“.
Eða „lindum“.