Þriðja Mósebók 14:1–57

  • Hreinsun af holdsveiki (1–32)

  • Hreinsun sýktra húsa (33–57)

14  Jehóva hélt áfram og sagði við Móse:  „Þetta eru lögin sem holdsveikur maður á að fylgja daginn sem staðfest er að hann sé hreinn og hann er leiddur fyrir prestinn.+  Presturinn á að fara út fyrir búðirnar og skoða hann. Ef maðurinn er læknaður af holdsveikinni  á presturinn að biðja hann um að koma með tvo hreina fugla, sedrusvið, skarlatsrautt efni og ísóp fyrir hreinsunina.+  Presturinn skal gefa fyrirmæli um að öðrum fuglinum sé slátrað yfir leirkeri með fersku vatni.  Hann á síðan að taka lifandi fuglinn ásamt sedrusviðnum, skarlatsrauða efninu og ísópnum og dýfa því öllu saman í blóð fuglsins sem var slátrað yfir ferska vatninu.  Hann á að sletta því sjö sinnum á þann sem er að hreinsa sig af holdsveikinni og úrskurða hann hreinan. Síðan á hann að sleppa lifandi fuglinum úti á víðavangi.+  Sá sem hreinsar sig skal þvo föt sín, raka af sér allt hárið og baða sig í vatni og er þá hreinn. Eftir það má hann koma inn í búðirnar en hann á að halda til fyrir utan tjald sitt í sjö daga.  Á sjöunda degi á hann að raka af sér allt hár á höfði og höku og augabrúnirnar. Þegar hann hefur rakað af sér allt hárið á hann að þvo föt sín og baða sig í vatni og verður þá hreinn. 10  Á áttunda degi á hann að taka tvö gallalaus hrútlömb, eina gallalausa gimbur,+ ekki eldri en veturgamla, þrjá tíundu hluta úr efu* af fínu olíublönduðu mjöli í kornfórn+ og einn lóg* af olíu.+ 11  Presturinn sem úrskurðar manninn hreinan skal leiða hann ásamt fórnum hans fram fyrir Jehóva við inngang samfundatjaldsins. 12  Presturinn skal taka annað hrútlambið og færa það að sektarfórn+ ásamt lóginum af olíu og veifa fram og aftur sem veififórn frammi fyrir Jehóva.+ 13  Síðan á hann að slátra hrútlambinu á heilögum stað þar sem venja er að slátra syndafórninni+ og brennifórninni því að sektarfórnin tilheyrir prestinum+ eins og syndafórnin. Hún er háheilög.+ 14  Því næst á presturinn að taka nokkuð af blóði sektarfórnarinnar og bera það á hægri eyrnasnepil þess sem er að hreinsa sig, á þumalfingur hægri handar hans og stórutá hægri fótar. 15  Hann á að taka nokkuð af lóginum af olíunni+ og hella í vinstri lófa sér. 16  Presturinn skal dýfa vísifingri hægri handar í olíuna sem hann er með í vinstri lófanum og sletta nokkru af henni með fingrinum sjö sinnum frammi fyrir Jehóva. 17  Presturinn ber síðan nokkuð af olíunni sem eftir er í lófa hans á hægri eyrnasnepil þess sem er að hreinsa sig, á þumalfingur hægri handar hans og stórutá hægri fótar, yfir blóð sektarfórnarinnar. 18  Presturinn ber það sem eftir er af olíunni í lófa hans á höfuð þess sem hreinsar sig og friðþægir þannig fyrir hann frammi fyrir Jehóva.+ 19  Presturinn skal færa syndafórnina+ og friðþægja fyrir þann sem hreinsar sig og síðan skal hann slátra brennifórninni. 20  Hann á að bera fram brennifórnina og kornfórnina+ á altarið og friðþægja fyrir manninn+ og þá verður hann hreinn.+ 21  En ef hann er fátækur og hefur ekki efni á þessu á hann að taka eitt hrútlamb í sektarfórn og veififórn til að friðþægja fyrir sjálfan sig, ásamt tíunda hluta úr efu* af fínu olíublönduðu mjöli í kornfórn, lógi af olíu 22  og tveim turtildúfum eða tveim ungum dúfum, eftir því sem hann hefur efni á. Önnur er færð að syndafórn en hin að brennifórn.+ 23  Hann á að færa prestinum þetta á áttunda degi+ við inngang samfundatjaldsins frammi fyrir Jehóva til að staðfesta að hann sé hreinn.+ 24  Presturinn á að taka sektarfórnarhrútinn+ og lóginn af olíu og veifa því fram og aftur sem veififórn frammi fyrir Jehóva.+ 25  Hann skal síðan slátra sektarfórnarhrútnum, taka nokkuð af blóði hans og bera það á hægri eyrnasnepil þess sem er að hreinsa sig, á þumalfingur hægri handar hans og stórutá hægri fótar.+ 26  Presturinn á að hella nokkru af olíunni í vinstri lófa sér+ 27  og sletta nokkru af olíunni í lófanum með vísifingri hægri handar sjö sinnum frammi fyrir Jehóva. 28  Hann á að bera nokkuð af olíunni í lófanum á hægri eyrnasnepil þess sem er að hreinsa sig, á þumalfingur hægri handar hans og stórutá hægri fótar, á sömu staði og hann bar blóð sektarfórnarinnar. 29  Presturinn á síðan að bera það sem eftir er af olíunni í lófa hans á höfuð þess sem hreinsar sig til að friðþægja fyrir hann frammi fyrir Jehóva. 30  Hann á að færa fram turtildúfurnar eða ungu dúfurnar, eftir því sem hann hefur efni á,+ 31  aðra að syndafórn en hina að brennifórn+ ásamt kornfórninni. Presturinn skal friðþægja fyrir þann sem hreinsar sig frammi fyrir Jehóva.+ 32  Þetta eru lögin um þann sem var holdsveikur en hefur takmörkuð fjárráð þegar á að staðfesta að hann sé orðinn hreinn.“ 33  Jehóva sagði síðan við Móse og Aron: 34  „Þegar þið komið inn í Kanaansland+ sem ég gef ykkur til eignar+ og ég læt holdsveiki spilla húsi í landi ykkar+ 35  á eigandi hússins að koma og segja við prestinn: ‚Það er komin einhvers konar skella á vegg í húsi mínu.‘ 36  Presturinn skal þá gefa fyrirmæli um að rýma húsið áður en hann kemur til að skoða skelluna til að hann úrskurði ekki allt sem er í húsinu óhreint. Síðan á hann að koma og skoða húsið. 37  Hann skoðar það og ef hann finnur gulgrænar eða rauðleitar skellur á veggjunum og þær virðast liggja dýpra en veggurinn í kring 38  á hann að ganga út fyrir húsdyrnar og loka húsinu í sjö daga.+ 39  Presturinn á síðan að koma aftur á sjöunda degi og skoða húsið. Ef skellan hefur breiðst út um húsveggina 40  á presturinn að fyrirskipa að steinarnir með skellunum verði fjarlægðir og þeim hent á óhreinan stað fyrir utan borgina. 41  Hann á að láta skafa húsið rækilega að innan, og kalkinu af veggjunum og steinlíminu sem er fjarlægt skal hent á óhreinan stað fyrir utan borgina. 42  Síðan á að setja nýja steina í stað þeirra sem voru fjarlægðir, nota nýtt steinlím og kalkbera húsið að nýju. 43  Ef skellurnar brjótast út á nýjan leik í húsinu eftir að steinarnir hafa verið fjarlægðir og húsið skafið og kalkborið að nýju 44  á presturinn að koma aftur og skoða það. Ef skellurnar hafa breiðst út í húsinu er þetta illkynja holdsveiki.+ Húsið er óhreint. 45  Hann á að sjá til þess að húsið sé rifið. Það á að fara með steinana, timbrið og allt kalk og steinlím á óhreinan stað fyrir utan borgina.+ 46  Sá sem fer inn í húsið meðan það er lokað+ verður óhreinn til kvölds.+ 47  Sá sem leggur sig í húsinu á að þvo föt sín og sá sem borðar í húsinu á að þvo föt sín. 48  En ef presturinn kemur og sér að skellur hafa ekki breiðst út um húsið eftir að það var kalkborið að nýju á hann að úrskurða að húsið sé hreint því að skellurnar eru horfnar. 49  Hann á að taka tvo fugla, sedrusvið, skarlatsrautt efni og ísóp til að hreinsa húsið.*+ 50  Hann á að slátra öðrum fuglinum yfir leirkeri með fersku vatni. 51  Síðan á hann að taka sedrusviðinn, ísópinn, skarlatsrauða efnið og lifandi fuglinn, dýfa þeim í blóð fuglsins sem var slátrað yfir ferska vatninu og sletta því sjö sinnum í átt að húsinu.+ 52  Hann á að hreinsa húsið* með blóði fuglsins, ferska vatninu, lifandi fuglinum, sedrusviðnum, ísópnum og skarlatsrauða efninu. 53  Eftir það á hann að sleppa lifandi fuglinum á víðavangi fyrir utan borgina og friðþægja fyrir húsið. Þá er það hreint. 54  Þetta eru lögin um hvers kyns holdsveiki, sýkingar í hársverði eða skeggi,+ 55  holdsveiki í fötum+ eða húsum+ 56  og um bólgur, hrúður og bletti á húð+ 57  til að skera úr um hvenær eitthvað er óhreint og hvenær eitthvað er hreint.+ Þetta eru lögin um holdsveiki.“+

Neðanmáls

Þrír tíundu úr efu jafngiltu 6,6 l. Sjá viðauka B14.
Lógur jafngilti 0,31 l. Sjá viðauka B14.
Tíundi hluti úr efu jafngilti 2,2 l. Sjá viðauka B14.
Orðrétt „hreinsa húsið af synd“.
Orðrétt „hreinsa húsið af synd“.