Önnur Mósebók 24:1–18

  • Fólkið lofar að halda sáttmálann (1–11)

  • Móse á Sínaífjalli (12–18)

24  Síðan sagði hann við Móse: „Gangið upp á fjallið til Jehóva, þið Aron, Nadab og Abíhú+ og 70 af öldungum Ísraels, og fallið fram í nokkurri fjarlægð.  Móse á að nálgast Jehóva einn. Hinir mega ekki koma nær og fólkið má ekki fara upp á fjallið með honum.“+  Móse kom síðan og sagði fólkinu frá öllu sem Jehóva hafði sagt og öllum lögunum.+ Allt fólkið svaraði einum rómi: „Við viljum gera allt sem Jehóva hefur sagt.“+  Móse skrifaði þá niður allt sem Jehóva hafði sagt.+ Hann fór snemma á fætur morguninn eftir og reisti altari við fjallsræturnar og 12 minningarsteina, einn fyrir hverja ættkvísl Ísraelsmanna.  Hann valdi síðan unga karla af Ísraelsmönnum og þeir færðu brennifórnir og fórnuðu nautum í samneytisfórn+ handa Jehóva.  Móse tók helminginn af blóðinu og hellti því í skálar og hinum helmingnum sletti hann á altarið.  Síðan tók hann sáttmálsbókina og las hana upp fyrir fólkið+ og það sagði: „Við viljum gera allt sem Jehóva hefur sagt og við ætlum að hlýða honum.“+  Móse tók þá blóðið, sletti því á fólkið+ og sagði: „Þetta er blóð sáttmálans sem Jehóva hefur gert við ykkur og er byggður á öllum þessum orðum.“+  Móse og Aron, Nadab og Abíhú og 70 af öldungum Ísraels gengu á fjallið 10  og þeir sáu Guð Ísraels.+ Undir fótum hans var eitthvað sem líktist gólfi úr safír, eins tærum og sjálfur himinninn.+ 11  Hann gerði þessum höfðingjum Ísraels ekki mein+ og þeir sáu hinn sanna Guð í sýn og átu og drukku. 12  Jehóva sagði nú við Móse: „Komdu til mín upp á fjallið og vertu þar kyrr. Ég ætla að láta þig fá steintöflur með lögunum og boðorðunum sem ég ætla að skrifa til að leiðbeina fólkinu.“+ 13  Móse og Jósúa þjónn hans+ lögðu þá af stað og Móse gekk upp fjall hins sanna Guðs.+ 14  En við öldungana hafði hann sagt: „Bíðið hér eftir okkur þangað til við komum aftur.+ Aron og Húr+ verða hjá ykkur. Sá sem þarf að fá dæmt í máli getur leitað til þeirra.“+ 15  Móse gekk síðan á fjallið en skýið huldi það.+ 16  Dýrð Jehóva+ hvíldi yfir Sínaífjalli+ og skýið huldi það í sex daga. Á sjöunda degi kallaði hann á Móse úr skýinu. 17  Í augum Ísraelsmanna var dýrð Jehóva á að líta eins og eyðandi eldur á fjallstindinum. 18  Móse gekk inn í skýið og upp á fjallið.+ Hann var á fjallinu í 40 daga og 40 nætur.+

Neðanmáls