Jesaja 43:1–28
43 Heyrðu nú hvað Jehóva segir,sá sem skapaði þig, Jakob, sá sem myndaði þig, Ísrael:+
„Vertu ekki hræddur því að ég hef endurleyst þig.+
Ég hef nefnt þig með nafni.
Þú tilheyrir mér.
2 Þegar þú gengur gegnum vötnin verð ég með þér+og yfir árnar, þá flæða þær ekki yfir þig.+
Þegar þú gengur gegnum eldinn muntu ekki brenna þigog þú sviðnar ekki í loganum
3 því að ég er Jehóva Guð þinn,Hinn heilagi Ísraels, frelsari þinn.
Ég hef gefið Egyptaland í lausnargjald fyrir þig,Eþíópíu og Seba í skiptum fyrir þig.
4 Þú ert dýrmætur í augum mínum,+ég heiðra þig og ég elska þig.+
Þess vegna gef ég menn í þinn staðog þjóðir í skiptum fyrir líf þitt.
5 Vertu ekki hræddur því að ég er með þér.+
Ég kem með afkomendur þína úr austriog safna ykkur saman úr vestri.+
6 Ég segi við norðrið: ‚Slepptu þeim!‘+
og við suðrið: ‚Láttu þá lausa.
Komdu með syni mína úr fjarska og dætur mínar frá endimörkum jarðar,+
7 alla sem bera nafn mitt,+alla sem ég skapaði mér til dýrðarog ég hef myndað og mótað.‘+
8 Leiðið fram fólk sem er blint þótt það hafi auguog heyrnarlaust þótt það hafi eyru.+
9 Allar þjóðir safnist saman á einum staðog þjóðflokkarnir komi saman.+
Hver þeirra* getur sagt þetta fyrir?
Eða geta þeir skýrt frá hvað gerist fyrst?*+
Leiði þeir fram vitni til að sanna mál sitt,látið menn heyra það og segja: ‚Þetta er rétt!‘“+
10 „Þið eruð vottar mínir,“+ segir Jehóva,„já, þjónn minn sem ég hef valið+svo að þið kynnist mér og trúið á mig*og skiljið að ég er alltaf hinn sami.+
Á undan mér var enginn Guð tilog eftir mig verður heldur enginn til.+
11 Ég, ég er Jehóva,+ og enginn frelsari er til nema ég.“+
12 „Það var ég sem boðaði það, sem frelsaði og gerði það kunnugtþegar enginn framandi guð var meðal ykkar.+
Þið eruð vottar mínir,“ segir Jehóva, „og ég er Guð.+
13 Ég verð alltaf hinn sami+og enginn getur hrifsað neitt úr hendi minni.+
Hver getur aftrað mér þegar ég læt til mín taka?“+
14 Þetta segir Jehóva, endurlausnari ykkar,+ Hinn heilagi Ísraels:+
„Ykkar vegna sendi ég her til Babýlonar og ríf niður slagbranda á öllum hliðunum,+og Kaldear hrópa af angist á skipum sínum.+
15 Ég er Jehóva, ykkar heilagi,+ skapari Ísraels,+ konungur ykkar.“+
16 Þetta segir Jehóva,sá sem leggur veg gegnum hafiðog opnar leið gegnum ólgandi vötnin,+
17 sá sem leiðir út hesta og stríðsvagna,+herinn ásamt köppunum:
„Þeir munu liggja þar og standa ekki upp.+
Þeim verður eytt eins og slökkt sé á logandi kveik.“
18 „Hugsið ekki um það sem áður varog dveljið ekki við fortíðina.
19 Sjáið! Ég geri nokkuð sem er nýtt.+
Það er nú þegar að spretta fram.
Sjáið þið það ekki?
Ég legg veg um óbyggðirnar+og læt ár streyma um eyðimörkina.+
20 Villtu dýrin heiðra mig,sjakalar og strútar,því að ég læt vatn spretta upp í óbyggðunum,ár streyma í eyðimörkinni+til að fólk mitt geti drukkið, mínir útvöldu,+
21 þjóðin sem ég myndaði handa mértil að hún gæti heiðrað mig og lofað.+
22 En þú hefur ekki ákallað mig, Jakob,+því að þú þreyttist á mér, Ísrael.+
23 Þú hefur ekki fært mér sauði að brennifórnné heiðrað mig með fórnum þínum.
Ég hef ekki þvingað þig til að færa mér gjafirné þreytt þig með því að krefjast reykelsis.+
24 Þú keyptir ekki ilmreyr handa mérog saddir mig ekki með fitu fórna þinna.+
Í staðinn hefurðu íþyngt mér með syndum þínumog þreytt mig með misgerðum þínum.+
25 En ég, ég afmái afbrot þín*+ sjálfs mín vegna+og ég minnist ekki synda þinna.+
26 Mætumst í réttarsal. Minntu mig á það sem ég kann að hafa gleymt.
Segðu þína hlið á málinu til að sanna að þú hafir rétt fyrir þér.
27 Fyrsti forfaðir þinn syndgaðiog talsmenn* þínir hafa gert uppreisn gegn mér.+
28 Þess vegna vanhelga ég höfðingja helgidómsins.
Ég gef Jakob eyðingunni á valdog læt Ísrael verða fyrir svívirðingum.+
Neðanmáls
^ Hugsanlega er átt við það fyrsta sem gerist í framtíðinni.
^ Hér er greinilega átt við falsguði.
^ Eða „treystið mér“.
^ Eða „uppreisn þína“.
^ Hugsanlega er átt við lagakennara.