Sakaría 10:1–12
10 „Biðjið Jehóva um regn þegar vorregnið á að koma.
Það er Jehóva sem myndar óveðursskýin,sendir mönnunum regnið+og gefur öllum gróður jarðarinnar.
2 Húsgoðin* hafa farið með blekkingar*og spásagnarmönnunum vitrast lygar.
Þeir segja frá gagnslausum draumumog til einskis reyna þeir að hugga.
Þess vegna ráfar fólk um eins og sauðfé,illa haldið því að það hefur engan hirði.
3 Ég er hirðunum bálreiðurog læt harðstjórana* standa fyrir máli sínu.
Jehóva hersveitanna hefur snúið sér að hjörð sinni,+ Júdamönnum,og gert þá tignarlega eins og stríðshest sinn.
4 Frá þeim kemur leiðtoginn,*frá þeim kemur stjórnandinn sem styður,*frá þeim kemur stríðsboginn,frá þeim ganga allir umsjónarmennirnir* fram, allir saman.
5 Þeir verða eins og hermennsem troða forugar göturnar í stríðinu.
Þeir heyja stríð því að Jehóva er með þeim+og riddarar óvinarins verða auðmýktir.+
6 Ég geri Júdamenn öflugaog bjarga ætt Jósefs.+
Ég mun leiða þá heim á nýþví að ég sýni þeim miskunn.+
Þeir verða eins og ég hafi aldrei hafnað þeim+því að ég er Jehóva Guð þeirra og ég bænheyri þá.
7 Efraímítar verða eins og öflugur hermaðurog hjörtu þeirra gleðjast eins og af víni.+
Synir þeirra sjá það og fagna,hjörtu þeirra gleðjast vegna Jehóva.+
8 ‚Ég blístra til þeirra og safna þeim samanþví að ég kaupi þá lausa+ og þeim mun fjölga.
Þeir verða alltaf fjölmennir.
9 Þó að ég dreifi þeim eins og fræi meðal þjóðannamuna þeir eftir mér á fjarlægum slóðum.
Þeir lifna við ásamt börnum sínum og snúa aftur.
10 Ég flyt þá heim frá Egyptalandiog safna þeim saman frá Assýríu.+
Ég flyt þá til Gíleaðlands+ og Líbanonsog landið mun ekki rúma þá.+
11 Ég fer um hafið og ýfi það,ég lægi öldur hafsins.+
Allir dýpstu hyljir Nílar þorna upp.
Hroki Assýríu steypist niðurog veldissproti Egyptalands skal víkja.+
12 Ég, Jehóva, geri þá öfluga+og þeir munu ganga í nafni mínu,‘+ segir Jehóva.“
Neðanmáls
^ Eða „Skurðgoðin“.
^ Eða „sagt frá dulrænum málum“.
^ Orðrétt „geithafrana“.
^ Orðrétt „hornturninn“, táknmynd um mikilvægan eða áberandi mann.
^ Orðrétt „tjaldhællinn“, táknmynd um mann sem veitir stuðning.
^ Eða „verkstjórarnir“.