Jobsbók 30:1–31
30 Nú hlæja þeir að mér+– mér yngri menn.
Ég hefði ekki treyst feðrum þeirratil að vera með fjárhundum mínum.
2 Hvaða gagn hef ég haft af styrk handa þeirra?
Þrek þeirra er þrotið.
3 Þeir eru örmagna af skorti og hungri,þeir naga skrælnaða jörðinasem var þegar orðin lífvana auðn.
4 Þeir safna söltu laufi af runnunumog hafa rætur gýfilrunnans til matar.
5 Þeir eru hraktir burt úr samfélaginu,+fólk hrópar á eftir þeim eins og þeir væru þjófar.
6 Þeir búa í gilbrekkum,*í jarðholum og hellum.
7 Þeir kveina úr runnunumog hnipra sig saman innan um netlurnar.
8 Þeir eru börn dugleysingja og nafnlausraog eru því reknir burt úr landinu.
9 En nú syngja þeir níðvísur um mig+og þeir hæðast að mér.*+
10 Þeir fyrirlíta mig og forðast,+þeir hika ekki við að hrækja framan í mig.+
11 Guð hefur afvopnað mig* og auðmýkt,þess vegna sleppa þeir fram af sér beislinu frammi fyrir mér.
12 Þeir rísa upp eins og skríll mér á hægri hönd,þeir reka mig á flóttaog leggja dauðagildrur fyrir mig á leið minni.
13 Þeir rífa upp stíga mínaog auka á þjáningar mínar+án þess að nokkur hindri þá.*
14 Þeir koma eins og gegnum breitt múrskarð,þeir streyma fram innan um rústirnar.
15 Skelfingin gagntekur mig,reisn mín fýkur út í veður og vindog björgun mín hverfur eins og ský.
16 Nú fjarar líf mitt út,+dagar eymdarinnar+ halda mér föstum.
17 Sársaukinn nístir gegnum bein mín um nætur,+nagandi kvölunum linnir ekki.+
18 Sterk öfl hafa afskræmt klæðnað minn,*hann þrengir að mér eins og kragi um hálsinn.
19 Guð hefur kastað mér niður í leðjuna,ég er orðinn að mold og ösku.
20 Ég hrópa á hjálp en þú svarar ekki,+ég stend á fætur en þú horfir bara á mig.
21 Þú hefur snúist miskunnarlaust gegn mér,+þú ræðst á mig af alefli.
22 Þú lyftir mér upp og vindurinn feykir mér burt,þú lætur mig kastast til í storminum.*
23 Ég veit að þú sendir mig í dauðann,í húsið þar sem allir lifandi menn eiga að mætast.
24 En enginn myndi ráðast á bugaðan mann*+sem hrópaði á hjálp á neyðarstund.
25 Hef ég ekki grátið yfir þeim sem hafa átt erfitt?*
Hef ég ekki vorkennt hinum fátæku?+
26 Ég vonaðist eftir góðu en hið illa kom yfir mig,ég bjóst við ljósi en þá kom myrkur.
27 Ólgan innra með mér hætti ekki,dag eftir dag mættu mér þjáningar.
28 Niðurdreginn geng ég um+ og sé ekki sólarglætu.
Ég rís á fætur í mannsöfnuðinum og hrópa á hjálp.
29 Ég er orðinn bróðir sjakalannaog félagi strútanna.+
30 Húð mín er orðin svört og flagnar af,+beinin brenna af hita.*
31 Á hörpu mína eru aðeins leikin sorgarljóð,á flautuna er leikið undir grát.
Neðanmáls
^ Eða „hlíðum flóðdalanna“.
^ Orðrétt „ég er orðinn þeim máltæki“.
^ Orðrétt „losað bogastreng minn“.
^ Eða hugsanl. „hjálpi þeim“.
^ Eða hugsanl. „Miklar þjáningar mínar afmynda mig“.
^ Eða hugsanl. „leysir mig upp með miklum gný“.
^ Orðrétt „á rústahaug“.
^ Eða „eiga erfiða daga“.
^ Eða hugsanl. „sótthita“.