Fjórða Mósebók 29:1–40

  • Leiðbeiningar um ýmsar fórnir (1–40)

    • Daginn sem blásið er í lúðurinn (1–6)

    • Á friðþægingardeginum (7–11)

    • Á laufskálahátíðinni (12–38)

29  Á fyrsta degi sjöunda mánaðarins skuluð þið halda heilaga samkomu. Þið megið ekki vinna neina erfiðisvinnu.+ Þann dag skuluð þið blása í lúðurinn.+  Þið skuluð færa í brennifórn sem ljúfan* ilm handa Jehóva eitt ungnaut, einn hrút og sjö veturgömul hrútlömb, allt gallalausar skepnur,  ásamt tilheyrandi kornfórn úr fínu olíublönduðu mjöli, þrem tíundu úr efu fyrir nautið, tveim tíundu úr efu fyrir hrútinn  og tíunda hluta úr efu fyrir hvert af hrútlömbunum sjö,  og færið auk þess ungan geithafur í syndafórn til að friðþægja fyrir ykkur.  Þessu á að fórna auk hinnar mánaðarlegu brennifórnar með tilheyrandi kornfórn+ og hinnar daglegu brennifórnar ásamt tilheyrandi kornfórn+ og drykkjarfórnum.+ Færið fórnirnar á hefðbundinn hátt. Þetta er eldfórn handa Jehóva, ljúfur* ilmur handa honum.  Á tíunda degi sjöunda mánaðarins skuluð þið halda heilaga samkomu+ og þið skuluð sýna að þið harmið syndir ykkar.* Þið megið ekki vinna nokkurt verk.+  Þið skuluð færa Jehóva í brennifórn, sem ljúfan* ilm handa honum, eitt ungnaut, einn hrút og sjö veturgömul hrútlömb, allt gallalausar skepnur.+  Og færið sem tilheyrandi kornfórn úr fínu olíublönduðu mjöli þrjá tíundu úr efu fyrir nautið, tvo tíundu úr efu fyrir hrútinn 10  og tíunda hluta úr efu fyrir hvert af hrútlömbunum sjö. 11  Færið auk þess einn kiðling í syndafórn fyrir utan syndafórnina til friðþægingar+ og daglegu brennifórnina með tilheyrandi kornfórn og drykkjarfórnum. 12  Á 15. degi sjöunda mánaðarins skuluð þið halda heilaga samkomu. Þið megið ekki vinna neina erfiðisvinnu. Þið skuluð halda Jehóva hátíð í sjö daga.+ 13  Þið skuluð færa í brennifórn,+ sem eldfórn og ljúfan* ilm handa Jehóva, 13 ungnaut, 2 hrúta og 14 veturgömul hrútlömb, allt gallalausar skepnur.+ 14  Og færið sem tilheyrandi kornfórn úr fínu olíublönduðu mjöli þrjá tíundu úr efu fyrir hvert af nautunum 13, tvo tíundu úr efu fyrir hvorn hrútinn 15  og tíunda hluta úr efu fyrir hvert af hrútlömbunum 14. 16  Færið auk þess einn kiðling í syndafórn fyrir utan daglegu brennifórnina með tilheyrandi kornfórn og drykkjarfórn.+ 17  Annan daginn skuluð þið fórna 12 ungnautum, 2 hrútum og 14 veturgömlum hrútlömbum, gallalausum skepnum,+ 18  með tilheyrandi kornfórn og drykkjarfórnum fyrir nautin, hrútana og hrútlömbin eftir fjölda þeirra. Gerið það á hefðbundinn hátt. 19  Færið auk þess einn kiðling í syndafórn fyrir utan daglegu brennifórnina og tilheyrandi kornfórn og drykkjarfórnir.+ 20  Þriðja daginn skuluð þið fórna 11 nautum, 2 hrútum og 14 veturgömlum hrútlömbum, gallalausum skepnum,+ 21  með tilheyrandi kornfórn og drykkjarfórnum fyrir nautin, hrútana og hrútlömbin eftir fjölda þeirra. Gerið það á hefðbundinn hátt. 22  Færið auk þess eina geit í syndafórn fyrir utan daglegu brennifórnina og tilheyrandi kornfórn og drykkjarfórn.+ 23  Fjórða daginn skuluð þið fórna 10 nautum, 2 hrútum og 14 veturgömlum hrútlömbum, gallalausum skepnum,+ 24  með tilheyrandi kornfórn og drykkjarfórnum fyrir nautin, hrútana og hrútlömbin eftir fjölda þeirra. Gerið það á hefðbundinn hátt. 25  Færið auk þess einn kiðling í syndafórn fyrir utan daglegu brennifórnina og tilheyrandi kornfórn og drykkjarfórn.+ 26  Fimmta daginn skuluð þið fórna 9 nautum, 2 hrútum og 14 veturgömlum hrútlömbum, gallalausum skepnum,+ 27  með tilheyrandi kornfórn og drykkjarfórnum fyrir nautin, hrútana og hrútlömbin eftir fjölda þeirra. Gerið það á hefðbundinn hátt. 28  Færið auk þess eina geit í syndafórn fyrir utan daglegu brennifórnina og tilheyrandi kornfórn og drykkjarfórn.+ 29  Sjötta daginn skuluð þið fórna 8 nautum, 2 hrútum og 14 veturgömlum hrútlömbum, gallalausum skepnum,+ 30  með tilheyrandi kornfórn og drykkjarfórnum fyrir nautin, hrútana og hrútlömbin eftir fjölda þeirra. Gerið það á hefðbundinn hátt. 31  Færið auk þess eina geit í syndafórn fyrir utan daglegu brennifórnina og tilheyrandi kornfórn og drykkjarfórnir.+ 32  Sjöunda daginn skuluð þið fórna 7 nautum, 2 hrútum og 14 veturgömlum hrútlömbum, gallalausum skepnum,+ 33  með tilheyrandi kornfórn og drykkjarfórnum fyrir nautin, hrútana og hrútlömbin eftir fjölda þeirra. Gerið það á hefðbundinn hátt. 34  Færið auk þess eina geit í syndafórn fyrir utan daglegu brennifórnina og tilheyrandi kornfórn og drykkjarfórn.+ 35  Áttunda daginn skuluð þið halda hátíðarsamkomu. Þið megið ekki vinna neina erfiðisvinnu.+ 36  Þið skuluð færa í brennifórn, sem eldfórn og ljúfan* ilm handa Jehóva, eitt naut, einn hrút og sjö veturgömul hrútlömb, allt gallalausar skepnur,+ 37  með tilheyrandi kornfórn og drykkjarfórnum fyrir nautið, hrútinn og hrútlömbin eftir fjölda þeirra. Gerið það á hefðbundinn hátt. 38  Færið auk þess eina geit í syndafórn fyrir utan daglegu brennifórnina og tilheyrandi kornfórn og drykkjarfórn.+ 39  Þessu skuluð þið fórna Jehóva á hátíðum+ ykkar, auk heitfórna+ ykkar og sjálfviljafórna+ sem þið færið að brennifórn,+ kornfórn,+ drykkjarfórn+ og samneytisfórn.‘“+ 40  Móse sagði Ísraelsmönnum allt sem Jehóva hafði gefið honum fyrirmæli um.

Neðanmáls

Orðrétt „sefandi“.
Orðrétt „sefandi“.
Hér virðist átt við ýmiss konar sjálfsafneitun, þar á meðal föstu.
Orðrétt „sefandi“.
Orðrétt „sefandi“.
Orðrétt „sefandi“.