Önnur Mósebók 40:1–38
40 Jehóva sagði síðan við Móse:
2 „Á fyrsta degi fyrsta mánaðarins skaltu setja upp tjaldbúðina, það er samfundatjaldið.+
3 Settu örk vitnisburðarins þar+ og hengdu fortjaldið fyrir framan hana.+
4 Berðu borðið inn+ og raðaðu á það því sem á að vera þar og berðu síðan ljósastikuna inn+ og kveiktu á lömpunum.+
5 Settu reykelsisaltarið+ úr gulli fyrir framan örk vitnisburðarins og hengdu upp forhengið fyrir inngang tjaldbúðarinnar.+
6 Settu brennifórnaraltarið+ fyrir framan inngang tjaldbúðarinnar, það er samfundatjaldsins.
7 Komdu kerinu fyrir milli samfundatjaldsins og altarisins og fylltu það vatni.+
8 Girtu af forgarðinn+ og settu upp forhengið+ fyrir inngang hans.
9 Taktu síðan smurningarolíuna+ og smyrðu tjaldbúðina og allt sem í henni er.+ Helgaðu hana og öll áhöld hennar þannig að hún verði heilög.
10 Þú skalt smyrja brennifórnaraltarið ásamt öllum áhöldum þess og helga það þannig að það verði háheilagt.+
11 Og smyrðu kerið ásamt undirstöðugrindinni og helgaðu það.
12 Leiddu síðan Aron og syni hans að inngangi samfundatjaldsins og þvoðu þá með vatni.+
13 Klæddu Aron í hinn heilaga fatnað,+ smyrðu hann+ og helgaðu, og hann skal þjóna mér sem prestur.
14 Leiddu síðan syni hans fram og klæddu þá í kyrtla.+
15 Þú átt að smyrja þá eins og þú smurðir föður þeirra+ þannig að þeir geti þjónað mér sem prestar. Smurningin veitir þeim varanlegan prestdóm kynslóð eftir kynslóð.“+
16 Móse gerði eins og Jehóva hafði gefið honum fyrirmæli um.+ Hann gerði það í einu og öllu.
17 Tjaldbúðin var sett upp í fyrsta mánuði annars ársins, á fyrsta degi mánaðarins.+
18 Þegar Móse setti upp tjaldbúðina kom hann undirstöðuplötunum+ fyrir, reisti veggrammana,+ kom þverslánum+ fyrir og reisti upp súlurnar.
19 Móse breiddi tjalddúkana+ yfir tjaldbúðina og lagði yfirtjaldið+ yfir hana eins og Jehóva hafði sagt honum að gera.
20 Að því búnu tók hann steintöflurnar með vitnisburðinum+ og lagði þær í örkina,+ kom stöngunum+ fyrir á henni og lagði lokið+ á hana.+
21 Móse fór með örkina inn í tjaldbúðina og hengdi upp fortjaldið+ svo að það stúkaði örk vitnisburðarins af,+ eins og Jehóva hafði sagt honum að gera.
22 Hann fór með borðið+ inn í samfundatjaldið, stillti því upp norðan megin í tjaldbúðinni fyrir utan fortjaldið
23 og staflaði brauðunum+ á það frammi fyrir Jehóva eins og Jehóva hafði sagt honum að gera.
24 Hann stillti ljósastikunni+ upp í samfundatjaldinu sunnan megin í tjaldbúðinni, á móts við borðið.
25 Hann kveikti á lömpunum+ frammi fyrir Jehóva eins og Jehóva hafði sagt honum að gera.
26 Móse setti gullaltarið+ inn í samfundatjaldið fyrir framan fortjaldið
27 til að brenna þar ilmreykelsi+ eins og Jehóva hafði sagt honum að gera.
28 Síðan hengdi hann upp forhengið+ fyrir inngang tjaldbúðarinnar.
29 Móse stillti brennifórnaraltarinu+ upp við inngang tjaldbúðarinnar, það er samfundatjaldsins, til að hann gæti fært þar brennifórnir+ og kornfórnir eins og Jehóva hafði sagt honum að gera.
30 Hann kom kerinu fyrir milli samfundatjaldsins og altarisins og fyllti það vatni til að nota til þvottar.+
31 Móse, Aron og synir hans þvoðu sér þar um hendur og fætur.
32 Þeir þvoðu sér+ í hvert sinn áður en þeir gengu inn í samfundatjaldið eða að altarinu eins og Jehóva hafði gefið Móse fyrirmæli um.
33 Að lokum girti hann af forgarðinn+ kringum tjaldbúðina og altarið og setti upp forhengið fyrir inngang hans.+
Þar með lauk Móse verkinu.
34 Skýið huldi nú samfundatjaldið og dýrð Jehóva fyllti tjaldbúðina.+
35 Móse gat ekki farið inn í samfundatjaldið því að skýið lá yfir því og dýrð Jehóva fyllti tjaldbúðina.+
36 Í hvert sinn sem skýið lyftist upp af tjaldbúðinni lögðu Ísraelsmenn af stað. Þetta gerðu þeir allan þann tíma sem þeir voru í óbyggðunum.+
37 Þeir lögðu ekki af stað fyrr en skýið lyftist.+
38 Ský Jehóva var yfir tjaldbúðinni á daginn og eldur var yfir henni á nóttinni fyrir augum allra Ísraelsmanna allan þann tíma sem ferðalag þeirra stóð yfir.+