Þakkarbæn
Söngur 45
Þakkarbæn
1. Heilagi faðir, Guð, hlýddu nú á,
hælis við, Jehóva, leitum þér hjá.
Heitin þú efnir og heyrir mál brýn,
hold allt á jörðinni leita má þín.
Fyrirgef Jehóva flónsku og synd,
fallið hold okkar nær ei þinni mynd.
Við erum keyptir með verðmætri gjöf,
viljum að aldrei sé á efndum töf.
2. Sælt er að fá þínum forgörðum í
fræðslu og leiðsögn sem er alltaf ný.
Dýrlegt er hús þitt og heilög orð trú,
hamingju veitir því lífsstefna sú.
Svar þitt þú veitir, þín verk birta mátt,
verður hann augljós í dóminum brátt.
Hjálpræði þitt viljum hylla öll nú,
heilaga útbreiðum því sanna trú.
3. Þegar þú vitjar fólks víða um heim,
veitir þú fögnuð og uppfræðslu þeim.
Kóngsríkið gæskunni krýnt himni á,
kvalir og tárin það þerrar af brá.
Illskunni sonur þinn eyða mun brátt,
öll sköpun fagnandi lofar þinn mátt.
Látum því óma þá lofgjörð sem ber,
lofaður Jehóva, dýrlegur er.