Býr Guð á ákveðnum stað?
Svar Biblíunnar
Já, Guð býr á ákveðnum stað, á himnum. Líttu á eftirfarandi biblíuvers:
Salómon konungur sagði í bæn: „Heyr þá í himninum þar sem þú býrð.“ – 1. Konungabók 8:43.
Jesús Kristur kenndi lærisveinunum að ávarpa Guð þannig í bænum sínum: „Faðir vor, þú sem ert á himnum.“ – Matteus 6:9.
Eftir að Jesús var reistur upp frá dauðum gekk hann „inn í sjálfan himininn, til þess að birtast nú fyrir augliti Guðs“. – Hebreabréfið 9:24.
Þessi vers bera greinilega með sér að Jehóva Guð er raunveruleg persóna og að hann býr ekki alls staðar, heldur á himnum.