Söngur 6
Bæn þjóns Guðs
1. Himneski Guð, þú alvaldur ert,
ætíð er nafn þitt aðdáunarvert.
Blíð er þín náð og traust alla tíð,
trúföst og örugg um ár og síð.
Trúföst, örugg ár og síð,
náð þín endist alla tíð.
2. Kenn okkur kærleik sannleikans til,
hvernig má gera vilja þínum skil,
framkvæma það sem frelsarinn bauð,
finna og næra sérhvern þinn sauð.
Finna, næra, sérhvern sauð
eins og sonur þinn skýrt bauð.
3. Við biðjum, Guð, um visku þér frá,
viljann að elska menn af hjartans þrá,
hvöt til að sýna kærleik og náð,
kynna þig vel um lög og um láð.
Kynna þig um lög og láð,
sýna ljúflynd ást og náð.
(Sjá einnig Sálm. 143:10; Jóh. 21:15-17; Jak. 1:5.)