Sálmur 76:1–12

  • Sigur Guðs yfir óvinum Síonar

    • Guð bjargar auðmjúkum (9)

    • Guð auðmýkir stolta óvini (12)

Til tónlistarstjórans. Fyrir strengjahljóðfæri. Söngljóð eftir Asaf.+ 76  Guð er þekktur í Júda,+nafn hans er mikið í Ísrael.+   Skáli hans er í Salem,+bústaður hans á Síon.+   Þar braut hann logandi örvar bogans,skjöldinn, sverðið og önnur stríðsvopn.+ (Sela)   Þú geislar skært.* Þú ert tignarlegri en fjöll full af villibráð.   Hugrakkir menn voru rændir,+þeir sofnuðu svefni dauðans. Hermennirnir komu engum vörnum við.+   Vegna ógnana þinna, Guð Jakobs,hafa vagnkappinn og hesturinn sofnað djúpum svefni.+   Þú einn ert mikilfenglegur.+ Hver getur staðist brennandi reiði þína?+   Af himni kvaðst þú upp dóm.+ Jörðin hræddist og þagði+   þegar Guð steig fram til að fullnægja dómiog bjarga öllum auðmjúkum á jörð.+ (Sela) 10  Reiði manna verður þér til lofs,+þú prýðir þig með leifunum af reiði þeirra. 11  Vinnið Jehóva Guði ykkar heit og efnið þau,+allir í kringum hann færi honum gjafir með lotningu.+ 12  Hann auðmýkir stolta leiðtoga,vekur ótta með konungum jarðar.

Neðanmáls

Eða „ert umvafinn ljósi“.