Síðari Konungabók 3:1–27
3 Jóram+ sonur Akabs varð konungur í Samaríu yfir Ísrael á 18. stjórnarári Jósafats Júdakonungs og ríkti í 12 ár.
2 Hann gerði það sem var illt í augum Jehóva, þó ekki í sama mæli og faðir hans og móðir því að hann fjarlægði helgisúlu Baals sem faðir hans hafði gert.+
3 Samt drýgði hann sömu syndir og Jeróbóam Nebatsson hafði fengið Ísrael til að drýgja+ og vék ekki frá þeim.
4 Mesa, konungur í Móab, stundaði sauðfjárrækt og var vanur að greiða Ísraelskonungi 100.000 lömb og 100.000 órúna hrúta í skatt.
5 En um leið og Akab var dáinn+ gerði Móabskonungur uppreisn gegn Ísraelskonungi.+
6 Jóram konungur hélt þá af stað frá Samaríu og kallaði saman allan Ísrael til bardaga.
7 Hann sendi líka Jósafat Júdakonungi þessi skilaboð: „Móabskonungur hefur gert uppreisn gegn mér. Viltu fara með mér í stríð við Móab?“ „Já, það skal ég gera,“+ svaraði Jósafat. „Ég stend með þér. Mitt fólk er þitt fólk og mínir hestar eru þínir hestar.“+
8 Síðan spurði hann: „Hvaða leið eigum við að fara?“ „Leiðina í gegnum óbyggðir Edóms,“ svaraði hann.
9 Ísraelskonungur lagði nú af stað ásamt Júdakonungi og konunginum í Edóm.+ Þegar þeir höfðu ferðast í sjö daga eftir krókaleið var ekkert vatn eftir handa hernum og skepnunum sem þeir höfðu með sér.
10 Ísraelskonungur sagði: „Þetta er skelfilegt! Jehóva hefur kallað saman þessa þrjá konunga til þess eins að gefa þá í hendur Móabs!“
11 Þá spurði Jósafat: „Er enginn spámaður Jehóva hér sem getur spurt Jehóva fyrir okkur?“+ Einn af þjónum Ísraelskonungs svaraði: „Hvað með Elísa+ Safatsson sem var þjónn Elía?“*+
12 Jósafat svaraði: „Hann getur sagt okkur hver vilji Jehóva er.“ Síðan fóru Ísraelskonungur, Jósafat og konungurinn í Edóm niður til hans.
13 Elísa sagði við Ísraelskonung: „Ég vil ekkert hafa með þig að gera.+ Farðu til spámanna föður þíns og spámanna móður þinnar.“+ En Ísraelskonungur svaraði honum: „Nei, því að það er Jehóva sem hefur kallað saman þessa þrjá konunga til að gefa þá í hendur Móabs.“
14 Þá sagði Elísa: „Svo sannarlega sem Jehóva hersveitanna lifir, hann sem ég þjóna,* myndi ég hvorki líta á þig né virða þig viðlits+ ef það væri ekki fyrir Jósafat+ Júdakonung.
15 Sækið nú hörpuleikara.“*+ Um leið og hörpuleikarinn byrjaði að spila kom hönd Jehóva yfir Elísa.+
16 Hann sagði: „Jehóva segir: ‚Grafið skurði um allan þennan dal*
17 því að Jehóva segir: „Þið munuð hvorki sjá vind né regn en samt mun þessi dalur fyllast af vatni+ og þið og allar skepnurnar munuð drekka af því.“‘
18 Það er hægðarleikur fyrir Jehóva.+ Hann ætlar líka að gefa Móab í hendur ykkar.+
19 Þið skuluð vinna allar víggirtar og mikilvægar borgir,+ fella öll góð tré, stífla allar uppsprettur og skemma allar góðar jarðir með grjóti.“+
20 Morguninn eftir, þegar færa átti kornfórnina,+ flæddi skyndilega vatn úr áttinni frá Edóm og dalurinn fylltist af vatni.
21 Þegar Móabítar heyrðu að konungarnir væru komnir til að ráðast á þá kölluðu þeir saman alla vopnfæra menn og þeir tóku sér stöðu við landamærin.
22 Þegar þeir fóru á fætur snemma morguninn eftir skein sólin á vatnið hinum megin frá. Móabítum sýndist vatnið vera rautt eins og blóð
23 og sögðu: „Þetta er blóð! Konungarnir hljóta að hafa drepið hver annan með sverðum sínum. Takið nú herfangið,+ Móabítar!“
24 Þegar þeir komu inn í herbúðir Ísraels réðust Ísraelsmenn til atlögu og hjuggu Móabíta niður svo að þeir lögðu á flótta.+ Ísraelsmenn héldu inn í Móab og drápu Móabíta hvern á fætur öðrum.
25 Þeir rifu niður borgirnar og köstuðu hver og einn steini á allar góðar jarðir svo að þær urðu þaktar grjóti. Þeir stífluðu allar uppsprettur+ og felldu öll góð tré.+ Að lokum var Kír Hareset+ ein eftir.* En slöngvukastararnir umkringdu borgina og létu steina dynja á henni.
26 Þegar Móabskonungur sá að bardaginn var vonlaus fór hann ásamt 700 mönnum vopnuðum sverðum til að brjótast í gegn til Edómskonungs+ en tókst það ekki.
27 Þá tók hann elsta son sinn, sem átti að verða konungur eftir hann, og fórnaði honum sem brennifórn+ á borgarmúrnum. Þetta vakti svo mikla reiði í garð Ísraels að liðið hélt burt þaðan og sneri heim til lands síns.
Neðanmáls
^ Orðrétt „sem hellti vatni yfir hendur Elía“.
^ Orðrétt „stend frammi fyrir“.
^ Eða „tónlistarmann“.
^ Eða „flóðdal“.
^ Eða „var ekkert eftir nema múrinn umhverfis Kír Hareset“.